|
Ég var nýverið í stefnumótun með teyminu mínu og ákvað að nýta mér hugmyndafræðina í Hoisin Kanri og X-matrix.
Í mjög stuttu máli er þetta að finna út hvað er mikilvægt og tengja alla hluti saman. Ásamt því að fá starfsmenn í lið með sér og fá þeirra input í stefnuna. Ég ákvað að stýra vinnustofunni sjálf fyrir teymið mitt og fór í gegnum eftirfarandi skref: 1. Kynnti stefnu fyrirtækisins 2. Teymi ræddi saman um hvaða 3-5 "breakthrough objectives" við vildum hafa fyrir næstu 3-5 ár. Þetta þurfa að vera stór, þverfagleg markmið og þú átt ekki að vita hvernig þú ætlar að ná þessum markmiðum. 3. Næst tóku við umræður um hvaða markmið ætlum við að setja okkur fyrir næstu 12-18 mánuði. Hámark 5-7! 4. Við spurðum okkur hvernig tengist þetta styttra markmið okkar lengra markmiði. Það verður amk eitt styttra verkefni að tengjast lengri tíma verkefninu. 5. Næst fórum við yfir hvaða umbótaverkefni ætlum við að vinna að til þess að ná þessum 12-18 mánaða verkefnum. Hámark 5-7! 6. Aftur fórum við yfir tengingar - hvernig tengjast þessi verkefni styttri tíma markmiðum. 7. Síðan ákváðum við hvaða mælikvarða við ætlum að nota til þess að mæla hvort við séum að ná árangri á skammtíma markmiðum. 8. Tengjum mælikvarðana við 12-18 mánaða verkefnin. 9. Síðan settum við eigendur á umbótaverkefnin og notfærðum okkur RACI model. Allir voru sammála um að þetta var frábær leið til að taka stefnuna lengra!
0 Comments
Leave a Reply. |
AuthorViktoría og Lísa Archives
February 2026
Categories |
RSS Feed