Ég nota mikið "Ísbrjóta" þegar ég er að halda vinnustofur eða vinna með teymum. Ég tel það bæði árangursríkt þegar teymi þekkjast vel og þegar teymi eru ný. Þegar teymi eru ný þá er auðveldlega hægt að nýta gömlu góðu ísbrjótana eins og 2 sannar fullyrðingar og 1 lygi. Starfsmenn þurfa að vera búnir að undirbúa sig og segja þessar 3 fullyrðingar og hópurinn á að giska hver lygin er. Hægt er að krydda þetta enn meira með því að nota til dæmis kahoot. Ég nota líka oft spurninguna - hvaða frægu manneskju hefuru hitt eða séð. Þá skapast oft mjög skemmtilegar umræður um "hvað er raunverulega fræg manneskja" og svo um atburðinn. Einnig er hægt að biðja einstaklinga um að segja frá hobbý sem þau eru í. Fyrir teymi sem þekkjast meira eða hafa verið á mörgum viðburðum saman þá eru nokkrir ísbrjótar sem eru ekki jafn algengir. Hægt er að búa til spotify playlista þar sem hver og einn setur inn 1-3 lög sem hann telur að lýsi sinni persónu eða leiðtogastíl, ég mæli með að hver velji amk 2 lög til að hafa þetta spennandi. Síðan er valið lag af handahófi og hópurinn giskar á hver hann telur að eigi lagið og afhverju. Þegar allir hafa giskað þá segir sá sem átti lagið afhverju hann valdi það. Þetta er mjög skemmtilegt og getur skapað góða stemmingu inn í daginn. Það er líka hægt að hafa þetta sem uppbrot nokkrum sinnum yfir daginn því það þarf ekki að klára öll lögin í einu. Lagið sem ég til dæmis valdi var "Can't stop the feeling" þar sem ég vil hafa ástríðu og orku í öllu sem ég geri ásamt því að hafa teymi með mér að dansa saman í átt að markmiðinu okkar. Að lokum langar mig að segja frá nýjum leik sem ég bjó til en ég bað ChatGPT um að búa til avatara eftir ákveðinni lýsingu til þess að lýsa hverjum og einum teymismeðlimi. Síðan sýndi ég einn avatar í einu og allir áttu að giska hver var þessi avatar. Þetta uppskar mikinn hlátur og spurningar.
1 Comment
Hi Viktoria,
Reply
Leave a Reply. |
AuthorViktoría og Lísa Archives
October 2024
Categories |