LEAN.is
  • Heim
  • Námskeið
    • Lean fyrir byrjendur
    • A3 notkun (verkefnastýring og vandamálarannsóknir)
    • Sjónræn stjórnun (töflur og 5s)
    • Umbótavinnustofur
    • Ferlagreining
    • Skilvirki leiðtoginn
    • Lean skólinn
  • Blogg
  • Efni
  • Myndbönd
  • Orðaskýringar
  • Um okkur

Nýtt myndband - verkefna A3

7/4/2018

0 Comments

 
Var að klára nýtt myndband um verkefna A3. Þetta er myndband 3 af fimm og því tvö eftir í þessari seríu um A3. Ég minni á að hægt er að fá sniðmát hér :)
0 Comments

Nýja persónuverndarlöggjöfin

6/27/2018

0 Comments

 
Picture
Ég rakst á 2 greinar um hvernig er hægt að líta á innleiðingu á nýju persónuverndarlöggjöfinni á lean hreinsun á gögnum og hinsvegar hvernig innleiðingin getur verið meira lean. Mér finnst þetta áhugavert því þetta er í raun það sem gert er í 5s:)

Hér er greinin um lean innleiðingu og hér er greinin um hvernig er hægt að líta á innleiðinguna.

0 Comments

Áfram Ísland

6/21/2018

0 Comments

 
Picture
Allir íslendingar fylgjast nú af kappi með HM. Næsti leikur er á morgun gegn nígeríu og ljóst að strákarnir okkar þurfa að halda áfram að vinna vel saman.
Mér hefur fundist einstaklega gaman að lesa viðtöl við bæði Heimi og svo strákana í liðinu. En þar tala þeir allir sem einn um liðsheild, vinnusemi, skipulag og undirbúning sem ástæðu fyrir því afhverju okkur íslendingum gengur svo vel. Þetta er einmitt nákvæmlega það sem fyrirtæki þurfa að gera - vita hvernig samkeppnin er og spila svo úr því besta sem sitt fyrirtæki gerir. Ekki herma bara eftir öðrum heldur finna sína bestu leið. Heimir Hallgrímsson er svo dæmi um þjónandi leiðtoga sem er virkilega "humble" en ég hef hlustað á hann tala um hvernig það er að vera stjórnandi og mæli ég með því ef þið hafið tækifæri til þess að hlusta á hann að gera það.
Svo er það bara ÁFRAM ÍSLAND :)
Picture
0 Comments

Gleðilegan þjóðhátíðardag

6/17/2018

0 Comments

 
Picture
0 Comments

Nýtt myndband um A3

6/13/2018

0 Comments

 
Hér er komið myndband 2/5 um A3 og að þessu sinni fjalla ég um vandamála A3.
Munið bara að það er mikilvægast að byrja - ekki hvaða sniðmát er notað :)
0 Comments

Business improv

6/4/2018

1 Comment

 
Ég skellti mér til Toronto í síðustu viku til þess að læra um hvernig er hægt að nota spuna í viðskiptaumhverfi. Second cities hélt námskeiðið sem hét "RewireU" og voru við 14 sem voru saman á námskeiðinu sem taldi tvo og hálfan dag. Ég lærði heilmikið á þessu námskeiði, bæði hvernig er hægt að nota hinar og þessar æfingar í vinnustofum en líka í breytingastjórnun o.s.frv. Við fengum líka að sjá spuna sýningu sem ég var að sjá í fyrsta skipti og fannst algjört snilld. 
Hér er hægt að lesa meira um námskeiðið. 
Einnig fannst mér þessi grein áhugaverð en hún er um afhverju við ættum að nota spuna meira. 
Ég hugsa að næst á dagskrá hjá mér sé að skrá mig í hefðbundnaspuna kennslu en það er námskeið sem er kallað "Haraldur". Hlakka til að skrá mig :)
1 Comment

Nýtt myndband um A3 - það fyrsta af fimm :)

5/29/2018

0 Comments

 
0 Comments

Dæmi um umbótafund

5/22/2018

0 Comments

 
Við á landspítalanum vorum að gera myndband sem sýnir hvernig umbótafundur getur farið fram. Þeir sem eru í þessu myndbandi eru: Viktoría Jensdóttir, Ósk Sigurðardóttir, Ólöf Elsa Björnsdóttir, Edda Dröfn Daníelsdóttir og Henný Hraunfjörð.
Picture
0 Comments

Customer journey mapping

5/14/2018

0 Comments

 
Stutt og hnitmiðað myndband um customer journey mapping :)
0 Comments

Besta stefnumótunin - að geta sagt nei :)

5/7/2018

0 Comments

 
Picture

Margir þekktir stjórnendur hafa fjallað um þetta að besta sem þeir lærðu að gera var að læra að segja nei. Þetta er líka mikilvægt í verkefnastjórnun - að virkilega forgangsraða verkefnum og klára þau sem þurfa að klárast fyrst og ekki bæta við sig fyrr en það er komið!
0 Comments

Hvað eru mælikvarðatöflur?

4/30/2018

0 Comments

 
0 Comments

Hvað er sóun?

4/24/2018

0 Comments

 
0 Comments

Flott lean healthcare ráðstefna á landspítala

4/24/2018

0 Comments

 
Mjög flott dagskrá er á lean healthcare ráðstefnu landspítalans sem haldin verður 4.maí. 
Picture
0 Comments

Hvað eru umbótatöflur?

4/17/2018

0 Comments

 
0 Comments

Lean Ísland 2018

3/27/2018

0 Comments

 
Picture
Vá þvílík ráðstefna, ég held ég þurfi bara nokkra daga til þess að jafna mig og setja allt niður á blað!
Það seldist upp þannig við vorum um 400 manns saman komin í Hörpu.
Lois Kelley byrjaði og var hennar erindi um hvernig við þurfum að fóstra við "rebel" fólkið okkar. Sem ýtir okkur út í hið óþægilega. Síðan var val, ég var allt valið í Kaldalóni og því hlustaði ég á Lauri tala um Last Planner system og lean construction, yuha um service design en þeir eru búnir að gera fáránlega flotta hluti, síðan var það erik og henrik frá newbody en þeir hafa náð gríðarlegum árangri með því að nota lean stefnumótun og svo að lokum var það hann kees sem var að tala um hvernig scania þjálfar sína starfsmenn. Að lokum voru síðan Max og Adam en þeir slógu algjörlega í gegn :)
Við erum strax farnar að plana fyrir næstu ráðstefnu en hún verður 15.mars 2018 og við höfum fengið staðfesta fyrirlesara frá Bank of Ireland, Google, Virgin Holidays og Nova!
En ég mun bráðlega koma með meira recapp af ráðstefnunni :)
0 Comments

Vantar þig 5s myndband?

3/26/2018

0 Comments

 
Hér fer ég yfir hvernig ég notaði 5s heima hjá mér :)
0 Comments

Helstu spurningar um töflur - svarað :)

3/19/2018

0 Comments

 
0 Comments

Ert þú búin að næla þér í miða?

3/12/2018

0 Comments

 
Nú styttist aldeilis í næstu Lean Ísland og lokar miðasölu á föstudaginn. Ekki missa af þessu frábæra tækifæri að læra, networka og njóta :)
Nánari upplýsingar á www.leanisland.is!
Picture
0 Comments

Hvað er Lean og Lean Ísland :)

3/8/2018

0 Comments

 
0 Comments

For the love of god er ekki hægt að staðla bragða ref?

3/6/2018

0 Comments

 
Picture
Þeir sem þekkja mig vel, vita það að ég elska ís. Ég fæ mér ís þó það sé ískuldi úti og mér finnst bara ekkert af því. Það sem mér finnst allra best er bragðarefur en fyrir þá sem ekki vita hvað það er þá bendi ég á næstu ísbúð :) Ég er frekar vanaföst - ehh - við skulum segja að ég sé búin að finna þá blöndu sem mér finnst best. Það er því frekar pirrandi fyrir mig, sem viðskiptavin, hversu mikill breytileiki getur verið í blöndunni. Í raun þá fer það algjörlega eftir starfsmönnum hversu mikið er sett af ís og nammi, meira segja er framleiðsluaðferðin líka mismunandi eftir starfsmönnum. Blandan sem ég vil fá er ca 1 1/2 bolli af ís og setja svo nammið mitt (jarðaber, piparduft og tromp kurl) 2 skeiðar af hverju, setja svo 1 1/2 bolla í viðbót ofan á. Síðan (hér kemur mikilvægt framleiðsluskref sem er oft sleppt) að þá þarf að blanda því í skál sem er stór þannig að það sé góð blöndun :) Ég skil að starfsmenn vilji sleppa uppvaski en ef það er blandað í boxinu þá bæði rífur það boxið (kemur oft gat og þau þurfa að nota fleiri box) og að það blandast alls ekki nægilega vel. 
Algeng sóun sem ég sé í ferlinu er 
- Illa blandað (galli)
- Of mikil vinnsla (að nota 2 form)
- Of mikill ís m.v. nammi (of mikil framleiðsla)
En ef við skoðum nú góðu hlutina að þá er ísbúðin sett þannig upp að starfsmenn þurfa ekki að hlaupa út um allt til þess að sækja hlutina heldur er allt sem þau þurfa á sínum stað. 

0 Comments

Go Krónan!

2/28/2018

0 Comments

 
Ég var á menntaþingi samtaka atvinnulífsins um daginn, þar voru framúrskarandi fyrirlestrar um menntun starfsmanna, barna o.s.frv.
Það var einn fyrirlestur sem mér fannst sérlega áhugaverður en hann var fluttur af Jóni Björnssyni sem er forstjóri Festi. Festi eiga m.a. Krónubúðirnar og Elko.
Hann fjallaði í sínum fyrirlestri um hvernig þau eru að vinna með sínum starfsmönnum til þess að efla þau og virkja. Ef þið ýtið á myndina, þá getið þið hlustað á fyrirlesturinn hans.
Picture
Nú svo ég tengi þetta við ánægju mína á Krónunni þá var það þannig um daginn að ég var að versla í ónefndri verslun. Það var föstudagur og jú fjölskyldunni langaði í föstudags pizzu. Ég byrjaði að leita af botni, svo skinku o.s.frv. Ég hugsaði með mér "af hverju er ekki svona pizza horn með öllu því sem ég þarf í pizzuna", ég hélt áfram að ráfa um verslunina þangað til ég fann jú eitt horn sem átti að vera pizza hornið. Það var hinsvegar ekki allt sem ég þurfti í pizzuna. Það tók mig því töluverðan tíma að labba um verslunina, leita af öllu fram og til baka.
Ég fór síðan í krónuna í gær eins og ég geri oft. Ég er mjög ánægð með nýju verslunina þeirra Flatahrauninu en hún er svo opin, góð lýsing og alltaf "tipp topp". Ég ráfaði þar um og hugsaði "hvað á ég að hafa í matinn" eins og svo margir aðrir. Þá kom ég að kjötinu og var þar ekki bás með þremur tillögum að kvöldmáltíðum og allt á sama stað!
Þegar ég fór svo fyrir hornið var líka hægt að kaupa allt í brönsinn á sama stað. Ég var þvílíkt ánægð með þetta og ég verð að segja að þetta er frábært hvernig þau eru að bregðast við t.d. eldum rétt. 

Dæmi um slæmt "allt á sama stað" og vel heppnað "allt á sama stað"

Picture

​Hér má sjá auglýsingu fyrir pizza deigi, pizza sósu o.s.frv. en það var hvergi í augsýn og ég fann það einhver staðar lengst frá, eftir mikla leit! Mér finnst nú lágmark ef þú ætlar að auglýsa svona að það sé á staðnum ;)

Picture
Picture
Hér má sjá frábæra uppstillingu á öllu sem þú þarft hvort sem það er í kvöldmatinn eða brönsinn!

Frábært vöruúrval!

Síðan að lokum þá verð ég að hrósa krónunni fyrir framúrskrandi vöruúrval, þeir eru alltaf að bæta við vegan vörum og eru með ýmislegt frá Happ. Síðan fyrir okkur kjötæturnar þá eru þeir komnir með vörur frá kjötkompaní. 
Ég vil líka taka það fram að ég hef engra hagsmuna að gæta frá krónunni, bara ánægður viðskiptavinur  og frekar mikið lean nörd - en myndirnar voru það fyrsta sem ég sýndi manninum mínum þegar ég kom heim!
​#notAd :)
0 Comments

Frábær tedx fyrirlestur

2/27/2018

0 Comments

 
Ég og Lísa skelltum okkur á frábæra AME ráðstefnu í nóvember. Dan Gilbert var einn af þeim sem hélt fyrirlestur um vísindin við hamingju. Alveg frábær fyrirlestur!
​
0 Comments

Sameining á áhugamálum

2/20/2018

0 Comments

 
Ég elska þegar ég get sameinað áhugamálin mín. Á ferð minni á hundasýningu um daginn þá var ég á mjög stórri hundasýningu. Oft þegar ég fer á svona stóra sýningu að þá er merkingum ábótavant. Það gladdi mig því mikið þegar ég sá risa skilti með öllum upplýsingum fyrir daginn :)
Picture
0 Comments

Meistaramánuður er hálfnaður!

2/16/2018

0 Comments

 
Nú er meistaramánuður hálfnaður og fróðlegt að vita hvernig öllum gengur með markmiðin sín. Ef ykkur vantar innblástur í að gera eitthvað núna næstu 2 vikurnar þá mæli ég með 5s. Í neðangreindu myndbandi útskýri ég hvað 5s er :)
0 Comments

Salerni - já ég hef mikinn á huga á þeim :)

2/13/2018

0 Comments

 
Picture
Á för minni til kaupmannahafnar um daginn þá þurfti ég að sjálfsögðu að nota salernið. Þegar ég var að að fara að þurrka á mér hendurnar þá sá ég að mæling á ánægju var staðsett þar. Það væri gaman að vita hvort að fleiri taka þátt þegar skráningartækið er á þessum stað :)

0 Comments
<<Previous
Forward>>

    Author

    Viktoría og Lísa

    Archives

    February 2026
    December 2024
    November 2024
    October 2024
    September 2024
    August 2024
    June 2021
    May 2021
    November 2020
    October 2020
    September 2020
    July 2019
    May 2019
    February 2019
    January 2019
    December 2018
    November 2018
    October 2018
    September 2018
    August 2018
    July 2018
    June 2018
    May 2018
    April 2018
    March 2018
    February 2018
    January 2018
    December 2017
    November 2017
    October 2016
    September 2016
    May 2016
    April 2016
    February 2016
    September 2015
    August 2015
    June 2015
    May 2015
    April 2015
    March 2015
    August 2014
    March 2014
    January 2014
    November 2013
    October 2013
    September 2013

    Categories

    All
    Office Lean
    One Piece Flow
    Personal Lean

    RSS Feed

Proudly powered by Weebly
  • Heim
  • Námskeið
    • Lean fyrir byrjendur
    • A3 notkun (verkefnastýring og vandamálarannsóknir)
    • Sjónræn stjórnun (töflur og 5s)
    • Umbótavinnustofur
    • Ferlagreining
    • Skilvirki leiðtoginn
    • Lean skólinn
  • Blogg
  • Efni
  • Myndbönd
  • Orðaskýringar
  • Um okkur