0 Comments
Hér fer ég yfir hvernig ég notaði 5s heima hjá mér :) Nú styttist aldeilis í næstu Lean Ísland og lokar miðasölu á föstudaginn. Ekki missa af þessu frábæra tækifæri að læra, networka og njóta :)
Nánari upplýsingar á www.leanisland.is! Þeir sem þekkja mig vel, vita það að ég elska ís. Ég fæ mér ís þó það sé ískuldi úti og mér finnst bara ekkert af því. Það sem mér finnst allra best er bragðarefur en fyrir þá sem ekki vita hvað það er þá bendi ég á næstu ísbúð :) Ég er frekar vanaföst - ehh - við skulum segja að ég sé búin að finna þá blöndu sem mér finnst best. Það er því frekar pirrandi fyrir mig, sem viðskiptavin, hversu mikill breytileiki getur verið í blöndunni. Í raun þá fer það algjörlega eftir starfsmönnum hversu mikið er sett af ís og nammi, meira segja er framleiðsluaðferðin líka mismunandi eftir starfsmönnum. Blandan sem ég vil fá er ca 1 1/2 bolli af ís og setja svo nammið mitt (jarðaber, piparduft og tromp kurl) 2 skeiðar af hverju, setja svo 1 1/2 bolla í viðbót ofan á. Síðan (hér kemur mikilvægt framleiðsluskref sem er oft sleppt) að þá þarf að blanda því í skál sem er stór þannig að það sé góð blöndun :) Ég skil að starfsmenn vilji sleppa uppvaski en ef það er blandað í boxinu þá bæði rífur það boxið (kemur oft gat og þau þurfa að nota fleiri box) og að það blandast alls ekki nægilega vel. Algeng sóun sem ég sé í ferlinu er - Illa blandað (galli) - Of mikil vinnsla (að nota 2 form) - Of mikill ís m.v. nammi (of mikil framleiðsla) En ef við skoðum nú góðu hlutina að þá er ísbúðin sett þannig upp að starfsmenn þurfa ekki að hlaupa út um allt til þess að sækja hlutina heldur er allt sem þau þurfa á sínum stað. |
AuthorViktoría og Lísa Archives
November 2024
Categories |