Hér er frábært dæmi um góða sjónræna stjórnun. Snyrtivörufyrirtækið The Inkey List nýtir sínar umbúðir mjög vel til þess að fræða viðskiptavininn um hvenær á að nota vöruna (AM/PM) en líka í hvaða skrefi ásamt því er fræðsla innan í.
Ótrúlega stílhreint og þægilegt fyrir viðskiptavininn!
0 Comments
Ég fékk dásamlega grein úr Bændablaðinu senda sem bar heitið “Lean í sauðburðinum”. Ég finn ekki greinina á netinu en fann samantektina sem var gerð af Gunnfríði Elínu Hreiðarsdóttir og Sigríði Ólafsdóttur. Ótrúlega gaman að sjá hugmyndafræðina nýtta í þessu umhverfi og sýnir að það er hægt að nýta lean allstaðar, Samantektina má nálgast hér :-)
#lean Það var ótrúlega gaman að fá að kynna hjá Dokkunni verkefnið mitt á fluttningi Albion.
Hér er að skoða myndbandið hér :) Nú verður Lean Ísland með breyttu sniði þar sem COVID19 er enn að stríða okkur. Ráðstefnan verður rafræn þann 20.október. Hún verður opin öllum sem skrá sig og vonumst við sem að flestir noti tækifærið og hlusti. Fyrirlestrar verða frá Toyota, Lego, Google ásamt íslenskum gestum úr viðskiptalífinu. Námskeiðin okkar verða einnig með breyttu sniði þar sem þau verða öll rafræn. Þau eru ótrúlega spennandi en Niahm frá google kennir Leadership og high performing teams en Jenny fjallar um hvernig er hægt að gera meira úr minna.
Hún Helen Bevan var með alveg frábæran fyrirlestur á Lean Ísland um breytingastjórnun. Hún hefur svo mikla ástríðu fyrir þessu málefni að hún ásamt fleirum hefur búið til "change agent school" og er öllum frjálst að skrá sig í hann. Hann er fjögur skipti og er "online". Nánari upplýsingar og skráning er hægt að fá hér: https://lnkd.in/g5fNqqM
Ég skrifaði stutta grein á link-ed in um Game of thrones og verkefnastjórnun.
Hægt er að skoða greinina hér og ef þú ert ekki búin að bæta mér (Viktoríu Jensdóttur) við á link-ed in þá máttu endilega gera það :) |
AuthorViktoría og Lísa Archives
June 2021
Categories |