Ég er vandræðalega spennt fyrir Lean Ísland ráðstefnunni sem haldin verður 6.apríl í Hörpu. Dagskráin er þétt og hægt að velja úr mörgu.
Ég er þó einnig mjög spennt fyrir námskeiðunum og gaman að sjá reynsluboltann Pascal Dennis vera með námskeið en hann er m.a. höfundur Andy&me bókanna. Ég mæli með þessu námskeiði fyrir alla sem vilja læra meira um lean með frábærum kennara. Ég hef farið á námskeið hjá honum fyrir nokkrum árum og fannst hann alveg meiriháttar. Ég er líka mjög spennt fyrir Billy Taylor stjórnenda námskeiðinu en hann er svo magnaður stjórnandi að það verður gaman að geta lært af honum. Eftir ráðstefnuna eru svo námskeið bæði á fimmtudeginum og föstudeginum. Á fimmtudeginum er James Dodkins, einn af hressari gaurum sem ég hef hitt að vera með Process Certification námskeið. James er ekki bara hress heldur hefur hann mikla reynslu af BPM, customer experience etc. Hann hefur líka unnið með t.d. nike og fleiri flottum fyrirtækjum. Á föstudeginum verður síðan Agnes Hólm með námskeið um kúltúr og strúktúr og síðan mælingar og menningu. Agnes er hokin af reynsly í lean og gæðamálum og hefur m.a. skrifað bókina Afburðarárangur. Þetta verður svo sannarlega lean, gæða, bpm veisla....ekki missa af þessu tækifæri !!
0 Comments
Leave a Reply. |
AuthorViktoría og Lísa Archives
December 2024
Categories |