LEAN.is
  • Heim
  • Námskeið
    • Skilvirki leiðtoginn
    • A3 notkun (verkefnastýring og vandamálarannsóknir)
    • Sjónræn stjórnun (töflur og 5s)
    • Umbótavinnustofur
    • Ferlagreining
  • Blogg
  • Efni
  • Myndbönd
  • Orðaskýringar
  • Um okkur

Mýtan um skilvirkni: Er lengri vinnudagur lykillinn að árangri?

12/27/2024

0 Comments

 
Það er útbreidd skoðun að því lengur sem við vinnum, því meira afköstum við. Þessi hugsunarháttur er ekki aðeins rangur - hann getur verið beinlínis skaðlegur.
=> Raunveruleikinn á bak við lengri vinnudaga
Alþjóðavinnumálastofnunin (ILO) og Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin (WHO) birtu sameiginlega rannsókn árið 2021 sem sýndi að langar vinnuvikur (55 klst. eða meira) tengjast 35% aukinni hættu á heilablóðfalli og 17% aukinni hættu á hjartasjúkdómum. [1] 💔
💸 Kostnaðurinn við ofvinnu
Rannsóknir sýna margþætt áhrif langra vinnustunda:
🧑‍⚕️ Heilsufarslegar afleiðingar: Samkvæmt VIRK starfsendurhæfingarsjóði eru helstu einkenni kulnunar einmitt tengd álagi og of löngum vinnudögum. [2]
📉 Minni framleiðni: Íslenskar rannsóknir á styttingu vinnuvikunnar sýna að styttri vinnuvika hefur jákvæð áhrif á framleiðni og vellíðan starfsfólks.
🪧Raunprófað á Íslandi : Tilraunaverkefni Reykjavíkurborgar og BSRB (2015-2019) sýndi að stytting vinnuvikunnar:
  - Jók starfsánægju
  - Minnkaði streitu
  - Bætti þjónustu
  - Fækkaði veikindadögum [3]
👉 Betri leið að aukinni skilvirkni
Í stað þess að einblína á fjölda vinnustunda, ættum við að horfa til gæða vinnunnar.
Niðurstöður sýna skýrt að við getum náð sama eða betri árangri á styttri tíma með réttri nálgun.
Picture
🫵 Hvað getur þú gert?
1. Settu skýr mörk: Skilgreindu vinnudaginn þinn og stattu við þau mörk.
2. Heilbrigt jafnvægi: Regluleg hvíld og tími fyrir fjölskyldu og áhugamál er ekki munaður - það er nauðsyn.
3. Einbeittu þér að gæðum og mikilvægustu verkefnunum: Þegar við vinnum hóflegan fjölda klukkustunda getum við einbeitt okkur betur að verkefnunum og skilað betri gæðum.
😎 Praktísk tól sem hægt er að nota eru til dæmis:
⏲️  Pomodoro aðferðin
📅 Skipuleggja “einbeitingartíma” í dagatalið þitt.
💪Nýta tímann betur með því að vinna erfiðustu verkefnin þegar þú ert í mestri orku
🤝 Takmarkaðu fjölda og lengd funda
​
Raunveruleg skilvirkni snýst ekki um að vinna sem lengst, heldur að vinna skynsamlega. Íslenskar rannsóknir og tilraunir hafa sýnt að styttri vinnuvika getur aukið bæði framleiðni og vellíðan starfsfólks.
Næst þegar þú freistast til að bæta við enn einni klukkustund á vinnudaginn, spurðu þig hvort það sé ekki betri leið að ná markmiðum þínum.
Ef þig langar til þess að læra meira þá er hægt að skrá sig á námskeiðið - "Skilvirki leiðtoginn" sem haldið verður í janúar 👌
Heimildir:
[1] [WHO/ILO: Long working hours increasing deaths from heart disease and stroke](https://www.who.int/news/item/17-05-2021-long-working-hours-increasing-deaths-from-heart-disease-and-stroke-who-ilo)
[2] [VIRK: Kulnun í starfi](https://www.virk.is/is/moya/news/kulnun-i-starfi
[3] [BSRB: Stytting vinnuvikunnar komin til að vera]( https://www.bsrb.is/is/stytting-vinnuvikunnar)
0 Comments

Desember gjafaleikur

12/6/2024

0 Comments

 
Við hjá Lean.is erum í gjafastuði og ætlum að vera með smá gjafaleik. 
Það eina sem þarf að gera er að skrá sig á póstlista lean.is. 
Við munum draga út á þorláksmessu en í boði eru miðar í Skylagoon og lean bækur!
Jólakveðja,
​Viktoría
0 Comments

6 mínútna skrif: Leið til innri friðar og sjálfsskoðunar

11/3/2024

0 Comments

 
​Á níunda áratugnum hóf Dr. James Pennebaker, prófessor við University of Texas, brautryðjendastarf í rannsóknum á áhrifum þess að skrifa um tilfinningar og erfiða reynslu. Hans rannsóknir hafa sýnt fram á að regluleg skrif um tilfinningar og hugsanir geta haft jákvæð áhrif á bæði andlega og líkamlega heilsu. Alison Jones sem hefur skrifað bókina “Write to think “ var með fyrirlestur á AME ráðstefnunni um þetta málefni. 

​Af hverju virkar það að skrifa?

​Samkvæmt kenningum Pennebaker hjálpar það að skrifa okkur að:
- Vinna úr erfiðri reynslu
- Skilja tilfinningar okkar betur
- Draga úr streitu
- Bæta almenna heilsu

Hvernig á að byrja

Alison mælir með því að skrifa án þess að ritskoða sig í 6 mínútur. Hægt er að nota þessa aðfreð:
1. Stilltu klukkuna á 6 mínútur
2. Skrifaðu samfellt án þess að stoppa
3. Einbeittu þér að því sem þú finnur og hugsar
4. Ekki hafa áhyggjur af málfræði eða stafsetningu
5. Vertu fullkomlega hreinskilin/n
Það er líka gott ráð að ef þú ert andvaka að hafa bók við höndina og skrifa niður áhyggjur þínar. 

Að skrifa fyrir sjálfan sig

Þegar við skrifum eingöngu fyrir okkur sjálf skapast öruggt rými fyrir:
- Hreinskilni við sjálfan sig
- Djúpa sjálfsskoðun
- Tilfinningalega úrvinnslu
- Frjálsa og óhefta tjáningu
Spurningar til að byrja með
Prófaðu að spyrja þig:
- "Hvað er efst í huga mér núna?"
- "Hvernig líður mér líkamlega?"
- "Hvað er það sem ég þarf virkilega að skoða betur?"
-“Afhverju skiptir þetta mig máli?”

Umbreyting hugsanna

​Ein af megin kenningum Pennebaker er að með skrifum getum við umbreytt því hvernig við hugsum um erfiða reynslu. Prófaðu að spyrja:
- "Hvað get ég lært af þessari reynslu?"
- "Hvernig hefur þetta mótað mig?"
- "Hvaða styrk hef ég öðlast?"
Með þessu þá breytiru viðhorfi þínu til reynslu sem mögulega var erfið. 

Regluleg iðkun

​Pennebaker og Alison leggja áherslu á mikilvægi þess að skrifa reglulega. Sex mínútur á dag geta:
- Hjálpað okkur að vinna úr daglegum áskorunum
- Aukið sjálfsþekkingu
- Bætt tilfinningalega úrvinnslu
- Stuðlað að betri andlegri heilsu
 Byrjaðu í dag
Sex mínútur er nógu langur tími til að komast í flæði en nógu stuttur til að passa inn í annasaman dag. Alison bendir á að það skipti ekki máli hvort þú geymir það sem þú skrifar - það er ferlið sjálft sem skiptir máli. Því þarftu ekki að geyma skrifin heldur.
Mundu: Þetta er þinn öruggi staður. Hér máttu vera nákvæmlega eins og þú ert, með allar þínar tilfinningar og hugsanir.*
 
Dr. Pennebaker hefur með rannsóknum sínum sýnt fram á að það að setja tilfinningar og hugsanir í orð getur haft djúpstæð áhrif á líðan okkar. Með því að gefa okkur þessar 6 mínútur á dag til að skrifa opnum og hreinskilnum huga, getum við öðlast betri skilning á okkur sjálfum og unnið markvisst í því að bæta andlega heilsu okkar. Ég hvet ykkur til þess að prófa þetta!
0 Comments

Breytt dagsetning á skilvirka leiðtoganum

10/30/2024

0 Comments

 
Picture
Af óviðráðanlegum ástæðum þá urðum við að fresta námskeiðinu um Skilvirka leiðtogan fram í janúar. Við vonumst til að sjá sem flesta nýta tækifærið að byrja nýja árið af krafti með því að mæta á þetta hagnýta námskeið!
0 Comments

Afhverju skilvirki leiðtoginn?

10/20/2024

0 Comments

 
Ég fékk tækifæri til þess að fara í smá viðtal hjá Smartlandi um tildrög námskeiðisins "Skilvirka leiðtogans" sem ég er að fara að kenna með Maríanna Magnúsdóttir 🤓
Þið getið tékka á því hér :)
0 Comments

Fyrirlestur í dokkunni

10/10/2024

0 Comments

 
Viktoría og Maríanna verðameð fyrirlestur hjá Dokkunni í tengslum við námskeiðið okkar - Skilvirka leiðtogan, umbótahugsun í lífi og starfi.
Fyrirlesturinn er 31.október kl. 9:00-9:45 og er online!
Mig langar líka að tengja þetta við bleikan október þar sem ég hef fengið brjóstakrabbamein en í þeirri vegferð notaði ég umbóta tólin og hugsunina mikið.
Hlakka til að sjá ykkur!

Nánari upplýsingar hér: ​https://dokkan.is/fundur/skilvirki-leidtoginn/
0 Comments

Ísbrjótur

10/1/2024

1 Comment

 
Picture
Ég nota mikið "Ísbrjóta" þegar ég er að halda vinnustofur eða vinna með teymum. Ég tel það bæði árangursríkt þegar teymi þekkjast vel og þegar teymi eru ný. Þegar teymi eru ný þá er auðveldlega hægt að nýta gömlu góðu ísbrjótana eins og 2 sannar fullyrðingar og 1 lygi. Starfsmenn þurfa að vera búnir að undirbúa sig og segja þessar 3 fullyrðingar og hópurinn á að giska hver lygin er. Hægt er að krydda þetta enn meira með því að nota til dæmis kahoot. Ég nota líka oft spurninguna - hvaða frægu manneskju hefuru hitt eða séð. Þá skapast oft mjög skemmtilegar umræður um "hvað er raunverulega fræg manneskja" og svo um atburðinn. Einnig er hægt að biðja einstaklinga um að segja frá hobbý sem þau eru í. 
Fyrir teymi sem þekkjast meira eða hafa verið á mörgum viðburðum saman þá eru nokkrir ísbrjótar sem eru ekki jafn algengir. Hægt er að búa til spotify playlista þar sem hver og einn setur inn 1-3 lög sem hann telur að lýsi sinni persónu eða leiðtogastíl, ég mæli með að hver velji amk 2 lög til að hafa þetta spennandi.  Síðan er valið lag af handahófi og hópurinn giskar á hver hann telur að eigi lagið og afhverju. Þegar allir hafa giskað þá segir sá sem átti lagið afhverju hann valdi það. Þetta er mjög skemmtilegt og getur skapað góða stemmingu inn í daginn. Það er líka hægt að hafa þetta sem uppbrot nokkrum sinnum yfir daginn því það þarf ekki að klára öll lögin í einu. 

Picture
Lagið sem ég til dæmis valdi var "Can't stop the feeling" þar sem ég vil hafa ástríðu og orku í öllu sem ég geri ásamt því að hafa teymi með mér að dansa saman í átt að markmiðinu okkar. 
Að lokum langar mig að segja frá nýjum leik sem ég bjó til en ég bað ChatGPT um að búa til avatara eftir ákveðinni lýsingu til þess að lýsa hverjum og einum teymismeðlimi. Síðan sýndi ég einn avatar í einu og allir áttu að giska hver var þessi avatar. Þetta uppskar mikinn hlátur og spurningar. ​

Picture
1 Comment

D-in FJÖGUR - fyrir tímastjórnun

9/18/2024

0 Comments

 
Picture
​Ef þú starfar í vinnuumhverfi þar sem er mikill hraði og verkefnin hrannast upp þá er gott að nýta sér hugmyndafræðina um D-in fjögur til þess að ná betri tökum á tíma og verkefnum.
D-in fjögur eru: Dump, Delegate, Do og Designate.
Hugmyndafræðin er sú að þegar þú færð nýtt verkefni eða aðgerð sem þú þarft að gera þá þarftu að ákveða hvaða D þú ætlar að nota til þess að að tækla það.  
  1. Dump: Hættu að gera hluti! Ef þú ert nú þegar með langan lista af verkefnum eða aðgerðum sem þú átt eftir að gera er gott að líta yfir listann og taka allt það út sem þú veist að þú ætlar ekki eða munt ekki gera. Ef við tökum dæmi um tölvupóst þá gæti það verið að  það komi fjöldapóstur sem þú ætlar þér ekki að líta á síðar þá er bara gott að afskrá sig af listanum og eyða póstinum.
  2. Delegate: Ekki reyna að gera allt sjálfur. Farðu yfir verkefnalistann þinn og skoðaðu hvort aðrir séu mögulega betri til þess fallnir að leysa verkefnið. Ekki gleyma að það getur gefið samstarfsmönnum tækifæri til þess að læra og vaxa. Ef við höldum áfram með dæmið um e-mail, það kemur e-mail og þú metur sem svo að samstarfsfélagi geti gert það. Sendu það strax áfram til þess að athuga hvort hann geti tekið þetta af sér. Bókaðu svo fund í framhaldinu til þess að taka stöðuna.
  3. Do: Kláraðu lítil verkefni strax og helst mörg lítil í einu. Gott er að miða við það að byrja á því sem þér þykir leiðinlegt að gera því það er mjög algengt að við förum bara í verkefni sem okkur finnst skemmtileg og þá náum við aldrei að fara í það sem við þurfum að gera.
  4. Designate: Taktu frá tíma í lengri verkefni. Ef það kemur eitthvað á þitt borð og þú þarft að gera það en þú hefur ekki tíma strax. Taktu frá tíma í dagatalinu þínu til þess að gera það. Þá er hægt að vinna án streitu í öðrum verkefnum því þú veist þú hefur tekið frá tíma til þess að vinna að þessu verkefni.
Með því að nýta D-in fjögur geturðu bætt bæði þína eigin tímastjórnun, aukið samvinnu innan teymis og leyft starfsmönnum að vaxa. Vertu skipulagður, deildu ábyrgðinni og fylgstu með hvernig verkefnin klárast! 

0 Comments

Stefnumótunar vinnustofa

8/30/2024

0 Comments

 
Picture
Í síðustu viku þá fékk ég þann heiður að lóðsa vinnustofu með gæðadeild Össurar en þau voru að huga að stefnunni fyrir 2025. 
Þarna var kominn fjölbreyttur hópur frá mismunandi stöðum og staðsetningum í fyrirtækinu og því þótti mér mikilvægt að það yrði mikil hópavinna. Formattið á vinnustofunni var því svona: 
1.Kynningar fyrir vinnufundinn
Við vorum með flestar kynningar áður en hópurinn kom saman og voru þær kynningar teknar upp svo að þáttakendur gætu horft aftur eða ef þeir misstu af. Eftir kynningarnar gáfum við þeim heimaverkefni. Heimaverkefnið var að fara ein í hugarflug um SWOT (strength - weakness - opportunities - threat)
2. Innblástur frá stjórnenda
Þegar vinnustofan hófst var framkvæmdastjóri rekstrarsviðs með stutta tölu um stefnu Össurar en svo fór hann í hugarflug um hvað þýðir gæði fyrir honum. 
3.Byggja upp traust
Næst fórum við í stuttan icebreaker með mannauðsdeildinni þar sem við sögðum örstutt frá okkur en líka frá einu sniðugu sem hinir vissu ekki um. Ég mæli með að hafa svona icebreaker til þess að ná trausti og góðri stemmingu í byrjun vinnustofu. Það er sértaklega sniðugt þegar starfsmenn vinna langt frá hvoru öðru eða ekki að sömu verkefnum. 



Picture
4. SWOT / SVÓT hópavinna
Síðan fórum við að vinna að SWOT greiningunni og þar sem þetta var 16 þáttakendur þá fannst mér mikilvægt að allir gætu sagt hvað þeir voru með í sínu heimaverkefni. Við byrjuðum því á að fara yfir hvern hluta fyrir sig í SWOT.
Hópavinnan
Í byrjun voru 2 saman þar sem þeir sögðu frá hvað þeir höfðu gert í heimavinnunni. Í næstu umferð höfðum við 4 saman þar sem 2 hópar sýndu sameinaða niðurstöður frá heimavinnu. Loks voru tveir 4 mannahópar sameinaðir í 8 þar sem aftur þau kynntu niðurstöður fyrri hóps ásamt því að sameinast um hvað væri mikilvægt fyrir þeim. Í lokin voru svo tveir átta manna hópar  sem kynnu fyrir öllum hópnum. Það sem er skemmtilegt við þetta er að allir hafa rödd en það er líka gaman að sjá hvað margir eru með áherslu á sömu hlutina. 

5. Verkefnalisti
Loks þegar við vorum búin að fara yfir Strength-Weaknesses-Opportunities - Threat þá báðum við alla í einrúmi að skrifa niður út frá því hvaða verkefni væru mikilvægust sem tengdust stefnunni og Must Win verkefnum
  • hvað þurfum við að byrja á
  • hvað þurfum við að halda áfram að gera
  • hvað ætlum við að hætta að gera
Þegar þau voru búin af því þá fórum við aftur í hópana (fyrst 2 saman, svo 4 og loks 8) en það mátti aðeins vera með að hámarki 5-7 verkefni í lokin.
6. Mikilvægustu verkefnin
Þegar báðir hópar voru búnir að kynna sín topp verkefni þá sameinuðum við listana og fórum í atkvæðagreiðslu varðandi hvaða verkefni voru mikilvægust.
Hver þáttakandi fékk 3 punkta og mátti setja á hvaða verkefni sem er.
7. Vinnuhópar á topp þremur verkefnum
Eftir atkvæðagreiðsluna vorum við komin með topp 3 verkefnin og þá mynduðum við minni vinnuhópa sem gátu þá farið á dýptina í því verkefni.
Markmið var að hugsa hvaða auðlindir þurfum við fyrir verkefnið, budget, IT etc.
8. Kynning og ábyrgðaraðilar
Loks var kynning á verkefnunum og ákveðið hver ætlaði að vera ábyrgðaraðili að taka málin áfram. Þetta er mjög mikilvægt því það er því miður algengt að allir gleymi verkefnum þegar vinnustofa klárast!

Allt í allt var þetta frábær vinnustofa með skemmtilegu fólki!

já og annað pro tip - ekki gleyma að hafa nægar veitingar og orkudrykki!
Picture
0 Comments

Skilvirki leiðtoginn, umbótahugsun í lífi og starfi

8/19/2024

0 Comments

 
Picture
Það er ótrúlega spennandi að segja frá nýju námskeiði sem er að fara af stað í haust. Í samstarfi við Maríönnu Magnúsdóttur mun Viktoría Jensdóttir vera með nýtt námskeið sem kallast skilvirki leiðtoginn, umbótahugsun í lífi og starfi.
Á þessu námskeiði munu Viktoría og Maríanna fara yfir hvernig er hægt að nýta umbóta tól í persónulega lífinu. Þær hafa báðar verið að nýta sér umbóta hugmyndafræðinga í yfir 15 ár og vilja nú hjálpa einstaklingum að nýta sér hana. Það eru takmörkuð sæti í boði þannig drífðu þig í að skrá þig!
Nánari upplýsingar og skráning!

0 Comments
<<Previous

    Author

    Viktoría og Lísa

    Archives

    December 2024
    November 2024
    October 2024
    September 2024
    August 2024
    June 2021
    May 2021
    November 2020
    October 2020
    September 2020
    July 2019
    May 2019
    February 2019
    January 2019
    December 2018
    November 2018
    October 2018
    September 2018
    August 2018
    July 2018
    June 2018
    May 2018
    April 2018
    March 2018
    February 2018
    January 2018
    December 2017
    November 2017
    October 2016
    September 2016
    May 2016
    April 2016
    February 2016
    September 2015
    August 2015
    June 2015
    May 2015
    April 2015
    March 2015
    August 2014
    March 2014
    January 2014
    November 2013
    October 2013
    September 2013

    Categories

    All
    Office Lean
    One Piece Flow
    Personal Lean

    RSS Feed

Proudly powered by Weebly
  • Heim
  • Námskeið
    • Skilvirki leiðtoginn
    • A3 notkun (verkefnastýring og vandamálarannsóknir)
    • Sjónræn stjórnun (töflur og 5s)
    • Umbótavinnustofur
    • Ferlagreining
  • Blogg
  • Efni
  • Myndbönd
  • Orðaskýringar
  • Um okkur